Málþing ReykjavíkurAkademíunnar um fjölmiðlun í almannaþágu, þriðjudaginn 25. apríl kl. 16:00 – 18:30 í Iðnó, Vonarstræti 3, efri hæð.
16:00 Setningarorð – Ingunn Ásdísardóttir, formaður stjórnar RA.
16:05 Íslenskt fjölmiðlaumhverfi og Evrópulöggjöfin.
Málshefjandi: Þorgeir Ólafsson, upplýsingafulltrúi í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Álitsgjafi: Mörður Árnason, íslenskufræðingur og fyrrv. alþingismaður.
16:25 Sambúð ósamlyndra hjóna? Rekstrarstaða einkarekinna og opinberra fjölmiðla.
Málshefjandi: Elín Hirst, fjölmiðlakona og fyrrv. alþingismaður.
Álitsgjafi: Hallgrímur Thorsteinsson, útvarpsmaður á RÚV.
16:45 Menningar- og fræðsluhlutverk RÚV: forsjárhyggja eða varðveisla menningararfs?
Málshefjandi: Friðrik Rafnsson, þýðandi og stjórnarmaður RÚV ohf.
Álitsgjafi: Ævar Kjartansson, útvarpsmaður.
17:05 Helstu áskoranir á vettvangi almannafjölmiðlunar.
Málshefjandi: Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri.
Álitsgjafi: Svandís Svavarsdóttir, alþingismaður.
17:25 Fyrirspurnir og athugasemdir úr sal.
17:50 Léttar veitingar.
18:30 Dagskrárlok.
Fundarstjóri: Arna Schram, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi